Fundargerð 28.09.2008 Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Höfundur: Rúnar Geir Ólafsson   
Laugardagur, 04 Október 2008 23:42
Þriðji fundur vetrarins var haldinn á skrifstofu okkar á Hátúni 12.

Það sem fór fram á þessum fundi var eftirfarandi:
Farið var yfir reglur Ný-ungar og voru gerðar smá breytingar á þeim.

Svo var smá kosning um varðandi skipulagsnefndina, en Friðrik var yfir þeirri deild. Við sem mætum á þennan fund finnst að þeir sem eru yfir nefndum eins og skipulagsnefndinni, að eina leiðinn til að hafa auga með öllum því sem á að fara fram í starfinu eigi að vera virkir í mætingu. Fór því kosning um að skipta um aðila sem verða yfir skipulagsnefndinni. Er því núna Alla yfir þeirri nefnd og einnig eru Hössi og Alex líka í þeirri nefnd.

Svo kom fram á þessum fundi að það sé yfir 900 þús kr inná reikning Ný-ungar. Við erum samt ekki viss um hvernig þessi aukning á bankareikningnum kom til. En verið er að athuga það.

Svo fóru við yfir nokkra kassa af bókum, sem gekk nokkuð vel þar sem að það var mjög góð mæting á þennan fund. En við náðum samt bara að fara yfir smá hluta af þessum þremur brettum. Þannig að við þyrftum helst að gera þetta.

svo enduðum við fundinn með því að fá okkur pítsur.

Næsti fundur verður næsta sunnudag á eðlilegum tíma, 4-6.
Og verður helsta umræðuefni, tónleikarnir, heimildamyndin og hvað við ætlum að gera fyrir vetrarhátíðinna ef við ætlum að taka þátt í henni.

Þetta er það helsta sem ég man eftir úr þessum fundi.
Ef ég er að gleyma einhverju eða einhverjum endilega látið mig vita.

Þeir sem mætu voru. Alla, Alex, Andri, Arnór, Egill, Fannar, Freddý, Halldór, Hössi, Kaktuz, Kolbeinn, Rúnar og Tinka.

Takk fyrir mig
Rúnar Geir.

Skoðanir

Please login to post comments or replies.
Síðast uppfært ( Laugardagur, 04 Október 2008 23:45 )
 
Borði
 

Skoðanakönnun

Ert þú meðlimur í Ný-ung?