Hvað er Ný-ung? Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Höfundur: Andri Valgeirsson   
Laugardagur, 27 September 2008 20:16
Ný-ung er ungliðahreyfing Sjálfsbjargar lsf. (landssamband fatlaðra).

Hreyfingin er opin bæði hreyfihömluðum og ófötluðum á aldrinum 18 - 30 ára sem hafa áhuga á málefnum ungs hreyfihamlaðs fólks.

Markmið hreyfingarinnar er að vekja athygli á því að í þjóðfélaginu er hópur ungs hreyfihamlaðs fólks.

Ný-ung beinir sjónum sínum að hverju því sem snertir þennan hóp, bæði jákvæðu og neikvæðu.

Þau verkefni sem hreyfingin tekur sér fyrir hendur eiga iðulega upphaf sitt í einhverju sem snertir meðlimahópinn persónulega. Verkefnin taka síðan á sig stærri mynd og afrakstur þeirra nýtist mun fleirum en þeim hópi sem virkur er í Ný-ung.

Jákvæðni, bjartsýni og húmor eru sterkustu vopnin sem Ný-ung á og eru þau óspart notuð í hinum ýmsu verkefnum.

Ný-ung er til dæmis móðurfélag Götuhernaðarins (www.oryrki.is, Öryrkjans ósigrandi og fjölda annarra verkefna.)

Skoðanir

Please login to post comments or replies.
Síðast uppfært ( Sunnudagur, 05 Október 2008 00:02 )
 
Borði
 

Skoðanakönnun

Ert þú meðlimur í Ný-ung?