|
Höfundur: Andri Valgeirsson
|
|
Mánudagur, 06 Október 2008 23:17 |
Þá er þetta allt að koma, núna rétt í þessu var ég að skella inn skoðanaformi svo nú geta allir sem eru innskráðir tjáð sig á greinar og fréttir, sem ég vona að muni gera síðuna mun virkari.
Síðan hef ég skellt inn dagatali þar sem atburðir Ný-ung er skráð og hvet ég alla til að skoða það reglulega þar sem upplýsingar munu vera birtar þar.
Síðast en ekki síst vil ég biðja fólk um að skrá sig svo það geti tekið þátt í þessum frábæra vef okkar.
Tjáðu þig (0) |
|
Síðast uppfært ( Fimmtudagur, 09 Október 2008 19:12 )
|
|
|
Fundargerðir komnar á vefinn |
|
|
|
|
Höfundur: Andri Valgeirsson
|
|
Laugardagur, 04 Október 2008 23:48 |
|
Þá eftir þó nokkra bið er allt efni nokkurnmegin komið inn á síðuna. Svo þegar líða tekur á kemur meira efni inn á hana og hún stækkar og stækkar. Þessvegna er mjög mikilvægt að fólk taki þátt í að skrifa greinar og bæta við öðru efni þegar það gefst tækifæri til. Þá munum við fá fleiri heimsóknir og fólk mun taka meira eftir þessari frábæru starfsemi sem er hér í gangi. Aftur vil ég hvetja alla til að skrá sig á síðuna og taka þátt í þessu starfi okkar sem við höfum unnið að hörðum höndum undanfarin ár.
Svo vil ég minna folk á að það er fundur á morgun klukkan 16:00 til klukkan 18:00 í Hátúni 12, 4 hæð. Mætum stundvíslega því það er margt sem þarf að ræða. Tjáðu þig (2) |
|
Síðast uppfært ( Mánudagur, 06 Október 2008 23:19 )
|
|
Höfundur: Andri Valgeirsson
|
|
Miðvikudagur, 01 Október 2008 09:17 |
|
Þá eru loks allir meðlimir komnir á síðuna. Það er enn smá vinnsla í gangi en hún kemur á næstu dögum. Ég ætla meðal annars að setja inn kerfi svo þið sem eruð innskráð geti commentað á flest allt á síðunni. Svo á ég líka eftir að bæta við greinum um hin ýmsu verkefni Ný-ungar og svo að sjálfsögðu koma allar fundargerðirnar inn fljótlega. En eins og ég segi þá hvet ég flesta til að skrá sig á síðuna, alveg sama þótt þið séuð meðlimir eða ekki og takið þátt á þessum stórkostlega vef og byggjum upp virka og góða síðu. Tjáðu þig (0) |
|
Síðast uppfært ( Mánudagur, 06 Október 2008 23:58 )
|
|
|
Tenglar og Verkefni bætt inn |
|
|
|
|
Höfundur: Andri Valgeirsson
|
|
Fimmtudagur, 02 Október 2008 20:42 |
Þá er maður loks búinn að setja inn nokkra tengla og búinn að setja inn upplýsingar um tvö stærstu verkefni Ný-ungar. Það eru að sjálfsögðu Götuhernaðurinn og ungmennaskiptaverkefnið "Passing Limits" en hægt er að lesa þau ef þú klikkar á "Verkefni hér til vinstri. Einnig tók ég mig til og uppfærði meðlimalistann. Næst á dagskrá er að setja upp skráningarform svo fólk geti sótt um í Ný-ung og fengið þar af leiðandi beint samband við Formann.
Tjáðu þig (0) |
|
Síðast uppfært ( Mánudagur, 06 Október 2008 23:19 )
|
|
Höfundur: Andri Valgeirsson
|
|
Föstudagur, 26 September 2008 20:03 |
Þá er nýja síðan hægt og rólega að komast upp. Allt efni verður komið inn sem fyrst og svo verða notendanöfn og annað gefið upp svo aðrir geta farið í það að skrifa greinar og bæta við síðuna. Í augnablikinu þá virka tenglarnir hérna til vinstri ekki en það verður komið í lag í kvöld. Til hamingju með nýju síðuna.
Tjáðu þig (0) |
|
Síðast uppfært ( Mánudagur, 06 Október 2008 23:19 )
|
|
|